Teddy Bear!:')
Jæja! Komin aftur heim og byrjuð í skólanum...en þetta var alveg æðisleg ferð!:D SÚBER! Ég ætla nú auðvitað að segja svona aðeins frá henni, nenni bara eeekki að fara út í nein smáatriði...=)
En jæja...sko! Ég og pabbi fórum á flugvöllinn og tókum á móti þeim og svo keyrðum við til Kolding eða rétt hjá þar sem bústaðurinn var! Það tók um 1 ½ tíma! Ég man bara ekki hvað við gerðum um kvöldið. . .
En við vorum eitthvað að tala um Óliver í bílnum á leiðinni og svo ætlaði ég að segja frá því þegar Palli keyrði næstum yfir broddgölt. En ég sagði PUNTSVÍN!:'D Haaalló sko! Svanhildur, Kolbrún, Unnur og Bára náttúrulega bara whaaat?! Þúst halló! Ég var sko eitthvað að rugla færeysku og dönsku saman en maður segir ekki einu sinni puntsvín...það er pintsvín minnir mig...=/ Miiisheppnuð like always...alltaf strítt mér:') En við gerðum alveg helling þarna! Fórum að versla, Legoland, Sommerland Syd, dýragarð og í sund...það var eiginlega alltaf rigning! Frekar óheppin með veður en það gerði allt bara skemmtilegra:) Komum eiginlega eina viku of snemma...Við vorum í einhverjum báti(tæki sko) sem fór upp og niður í Sommerland Syd og þegar við vorum búin að vera í smááá stund kom piiissandiii riiigning!!! SHIIITT! Og báturinn fór 20 sinnum upp og niður eða eitthvað!:') Ég var ekkert smááá blaut...svo fórum við í kliiikkaðann rússíbana!!!!!!! ÞAÐ VAR ALVEG GEEEÐVEIKT!!!!!:D:D:D Svo þegar við vorum í Legolandi kom líka geðveikt mikil rigning:') Við fórum líka í rússibana þar og þegar við vorum í röðinni kom auðvitað rigning...meira þegar við fórum að renna okkur:') Þetta var bara gaman kona:D Svo einhvern tímann þegar við vorum í Kolding var Bára að keyra á undann og svo ætlaði hún að fara til vinstri en sá ekki stoppskiltið og löggan kom beint á móti henni! Hahahha:') Það var ekkert smá fyndið! Björgvin var geðveikt að pæla í að fara á eftir henni en svo sáum við öll skiltið og hann fór til hægri! Meina, eins gott!:P Löggan gerði bara svonameð höndunum eins og þegar flugfreyjur eru að segja manni hvar neyðarútgangarnir eru...greinilega eitthað vanir:') Ekkert mál, enginn sekt!=) Við fengum 2 HUGES pizzur! Svo klessti Bára á einhverja súlu á einhverju bílastæði...en bílarnir við hliðina á henni voru ekki alminnilega í stæðinu, notuðu 2 stæði eða eitthvað!:O Svo fórum við líka í stórcentrið:D Ég var aaalltaf síðust að gera allt og gleymdi yfirleitt einhverju og týndi líka flestu! Klikkaði EKKI:') En það verður einhver að taka sér að þessu!:P Svo var bara vani að spriiinga úr hlátri við matarborðið:') Alltaf að spila Kúkalabba líka:P Ekki við matarborðið samt:')
Svo keyrðum við til Köben...rosa stuð! Við vorum á 5 stjörnu hóteli, fínt hótel:D Ég var með Ellu, Kristjáni og Björgvin! Svo voru Unnur, Kolbrún, Svanhildur, Gréta og Bára saman! Þetta var sko bílaskiptingin:P Gréta var fyrst með okkur en skipti þegar við stoppuðum á leiðinni...too bad for her...:P Life is a bitch! Bára og Björgvin skiluðu leigubílnum, hótelið var hvort sem er bara í miðbænum hjá öllu=) Við fórum bara strax niður í miðbæ fórum á Strikið eitthvað að skoða en það var eiginlega allt lokað, enda laugardagur=/ Fórum að borða á Burger King...ég og Ella keyptum okkur svona til að setja í munninn og svo kemur svona asnalegt hljóð...snilld:') En það var alveg geðveikt mikið af fólki sem svaf bara á götunni og voru bara að betla en var samt með sígarettupakka og áfengi:S Ruglað lið! Svo var Gay Pride eða eitthvað í gangi, rosa stuð:D Svo var karl að teikna svo skrípamyndir og við, allar stelpurnar létu gera eina:P Svo næsta dag vöknuðu allir snemma til að geta verslað eitthvað sunnudaginn en neeei! Það voru engar fatabúðir opnar!!! En ég og Ella keyptum myndir, Ella keypti sér 2 Pac og hestamynd handa pabba sínum og ég keypti Kurt Cobain handa Guðný:D. . .við fórum svo bara að sigla og skoða svona aðal í Köben...litla hafmeyjan er lítil...:') Skoðuðum geðveikt flotta kirkju og svo sáum við konungshúsið...það voru svona verðir! En þeir máttu alveg brosa...=/ En ég og Ella erum að fara til London og reyna að láta verðina þar brosa:D Þeir náttúrurlega meiga það ekki:P Herðu já! Ella var bara rosalegur glæpamaður þarna...löggan var aaalltaf á eftir henni!:/ Meira að segja í þyrlu...pff!:') Svo fórum við á Hard Rock Cafe!:D Snilld:P Og ég keypti mér svona bangsa sem maður fær að ráða alveg hvernig hann er...ég átti að velja hjarta kyssa það báðu megin(gott báðu megin:')) og hoppa 15 sinnum af þvi ég er 15 ára og svo kyssa það aftur!!! Þetta er náttúrulega bara til þess að gera þetta gaman fyrir litla krakka!:p Svo var ég alveg geðveikt að drífa mig því að við vorum að fara strax í tívolí og afgreiðslukonan var að spurja hvort að ég vildi slaufu og eitthvað rögl! Herðu já alveg rétt!! Ég gleymdi myndavélinni minni í bílnum svo ég og Björgvin þurftum að labba þar sem hann og Bára skiluðu bílunum og ná í hana...það var einmitt einhver karl að leigja bílinn og fara og þá heyrðist í disknum hennar Ellu sem hún gleymdi:') Björgvin fékk hann! Svo var karl sem tæmdi bílana búinn að finna myndavélina og sagði að þetta var bara porno-myndavél og að batteríin voru bara aaalveg búin:') Hahahaha!:D Þá var hann eitthvað að djóka með að það voru bara porno-myndir og að hann væri búinn að skoða hana svo lengi að batteríin væru sem sagt búin...skiljiði?!:P
Svo fórum við í tívolí!:D Ég fílaði þetta sko uppí loft!!!!:D:D:D Frjálsa fallið var rooosalegt! Maður var geðveikt spenntur þegar maður var sestur, en svo fór þetta upp og við stoppuðum bara uppi í smá stund og þá vildu allir bara fara niður!:') Þetta var svo hátt kona! En svo fór þetta niður og shjiiiiiiiiiit!!!!! Þvílíkt...OJJ! Það öskruðu aaallir! Ég fór alltaf aftur og aftur:P Líka í rússíbanann í Sommerland Syd...:P Rooosalegt! Þetta fílaði ég sko upp í loft og í gegnum þakið bara!!! Shitt! Öll tækin voru skemmtileg NEMA "Fljúgandi kistan" eða eitthvað:S Við héldum öll að þetta væri fljúgandi teppi, horfðum bara á "Fjúgandi..." og fórum inn...en þetta var ömmurlegt! Fóru 2 í eina kistu og svo fór þetta geðveikt hægt og svo var einhver karl að segja ævintýri...:O Boooring! Allir geðveikt svekktir, vorum bara að tala saman:') Svo var sýning rétt áður en allir áttu að drulla sér út! Nei,nei:P En þessi sýning var ekkert smá flott! Þetta voru svona diskóljós á vatninu og tónlist:p Gaaasalegt:) En svo fórum við heim á hótelið! Það voru kallar sem vour með kerru atfanaá hjólunum og þeir hjóluðu með okkur heim:D Ég og Ella sofnuðum geiðveikt seint því að Kristján hraut ekkert smááá! Það kæmi mér ekkert á óvart ef að stelpurnar heyrðu hann hrjóta og það var 1 herbergi á milli!!!:O Eeen við sofnuðum að lokum...:) Finally! Svo áttum við að fara úr herberginu fyrir kl:09...fengum okkur morgunmat og svo átti að labba með allann farangurinn að lestarstöðinni!!! Ömurlegasta hugmynd eða hvað maður nú á að kalla þetta, sem ég hef tekið þá í! Shjitt! Ég var með alveg geðveikt þunga tösku, ekki flugfreyjutösku! Snyrtitösku, sem var fuuull, kassann með bangsanum mínum í og bara mína venjulegu tösku...ojj! Og þetta var ekkert stutt, ónei! En svo vorum við komin á flugvöllinn, krakkarnir og Bára og Björgvin að checka-in og ég varð bara að bíða...svo voru þau búin að því, sagði bæ við alla og Björgvin fór með mig á "minn" flugvöll! Var auðvitað að fljúga innanlands:) En það var ekkert mál að finna hann...sagði bæ við Björgvin skellti mér í gegnum tollinn ooog beið...fékk mér bara Haribo-gummí-nammi:D Ekkert mál að komast í flugvélina, tók 45 mín að fljúga og mér fannst þetta vera eins og 10-15 mín!:O Geðveikt góð lending=) Fattaði varla að við vorum lennt:P Svo hitti ég mömmu, pabba og Palla á flugvellinum, við fórum við stórcenter, keypti eitthvað þar, svo náðum við í Bonnie, fórum í afmælið hjá Hermanni litla ooog fórum svo heim...
Svo fór ég í skólann næsta dag, það var ekkert mál...sofnaði svo um kvöldið, vaknaði í dag, fór í skólann, var búin í skólanum og here I am:D En ég var annars að leita að Three Days Grace í öllum geisladiskabúðum sem ég fann, en það var eeenginn með hann! Ömmurlegt!
En ég nenni bara ekki að blogga meira! Þið eruð bara skrítnar manneskjur ef þið lesið þetta allt, ég myndi ekki gera það!
Have a nice day!
Undir og inn!=)

8 comments:
úffff.. LANGT blogg.. shitt.. eg var alveg að gefast uppá þessu en eg er svo dugleg að eg las þetta allt:| en Glæsilegt blogg.. og vonandi skemmtuði ykkur eins vel og eg las í blogginu.. en afhverju meiga þessir verðir ekki brosa.. þið áttuð bara að fara fyrir framan þá að gretta ykkur eða e-ð.:D hehe.. en bara LENGSTA blogg sem eg hef lesið.. og trust me.. eg hef lesið þau mörg..;) bæjjó;** bið að heilsa..
Hahaha! Það eru bara reglur...en ég og Ella erum að fara til Englands og gretta okkur fyrir framan þá því þeit mega eeekki brosa!:') En ég er alveg sammála þér...aaalltof langt blogg!
hehe.. en hvað gerist ef þeir fara að hlægja? hehe.. eg gæti allavega ekki unnið í þessu starfi:S guð minn góður.. myndi maður ekki deyja úr hlátri ef að einhgver er að gretta sig framan í mann hahahaha..:D
ENMITT!:') Ég myndi aldrei geta unnið við svona, ekki brosa=/ En það er bara eitthvað bannað...:S Don't know why...
Össs :D..!;*..! =]..! Ég las thetta allt..! ALLT:D..! vonandi var gaman ;)..!
-That's all folks
-Ásdís-69-..!
jamm ég er stórskrítin og las þetta allt ;) en þetta hlýtur bara að hafa verið ógeðslega skemmtilegt..herru ég heyri bara í þér á msn ;****
ER EKKI Í LAGI MEÐ YKKUR?!:') Lásuði virkilega þetta aaallt? Ohh...þið eruð skrítin!:D En taaakk:* I'm flatteret(A)
Hehe ruglaður? Já ætli það ekki bara ;) En takk fyrir geggjaða ferð og gaman að heyra að þér fannst jafn gaman og mér!! Passa bara að gleyma sér ekki !! ;)
Post a Comment