Tuesday, May 30, 2006

Þriðjudagur..

Skólinn búinn eftir 3 daga! Svo eru öll prófin eftir.. "de mundtlige prøver" :)


En Rockparty!
Föstudagurinn - Það var ógeðslega gaman.. Ég og Nicoline fórum þangað, vorum þar allann daginn. Góðar hljómsveitir að spila og svona. Svo fengum við okkur franskar og tókum flottar myndir með hárkollu, rafmagnsgítar, gleraugu og svona. Voða nice.. Og svo sáum við Herdis, systir mína. Jesús! Hún var fuuull. Svo var hún að bjóða mér bjór og sígarettu og svo eitthvað svart í svona tilraunarglasi.. Svo var hún að segja við mig að maður yrði ekkert fullur af þessu - hún gat varla staðið! Good one.. Svo kom Tordis, hin systir mín hlaupandi í áttina að mér, öskrandi: Beeeeeeintaaaaaa! Ojj.. embarrassing. Svo vorum við bara labba og hlusta á hljómsveitirnar. Var reyndar skemmtilegra en það hljómar..

Laugardagur - ég, mamma og pabbi fórum að kaupa gólfteppi. Svo fórum ég og Nicoline aftur á Rockparty. Hittum Sofie. Svo sáum við eðlisfræðikennarann hennar Nicoline, hann var bliiindfullur! Hann var sá eini sem var fuuullur. Hann var að dansa. ENGINN annar var að dansa. Haha! Svo fórum við á McDonalds, ég fékk mér bara franskar. OG! Svo kom DAD, Þeir eru góðir!! En! Surprise, surprise! Það leið yfir mig! Aaaaaaaaa!!! Það eina sem ég man var að einhver vörður fór með mig til læknis þarna á svæðinu.. Nicoline kom auðvitað með! Alveg klikkuð. Hélt að ég væri að deyja, öskraði á fólkið þarna. Svo sagði hún við mig að þegar vörðurinn kom, þá ætlaði hann að fara með mig á WC, hélt að ég væri full og þyrfti að æla, en Nicoline öskraði á hann: HÚN ER EKKI FULL! HÚN ÞARF AÐ FARA TIL LÆKNIS!!!! ER SVO ERFITT AÐ SKILJA ÞAÐ?!?! Svo hún togaði mig til vinstri og hann til hægri! Haha! Svo misstu þau mig, maður er náttúrulega ekkert smá þungur þegar maður er meðvitundarlaus..
En svo þegar ég var komin þangað, talaði við konuna, sagði við hana að ég væri EKKI full, fékk ég að leggjast niður.. Niiiiiiiiice.. Heyrði í Nicoline tala við karlinn fyrir utan, og hún var að segja að ég væri með blóðár(heitir það, það?), bara í 'hinum' endanum.. Hahaha! Hún var sem sagt að reyna að segja honum að ég væri á túr.. En svo sögðu þau bara ég ég væri búin að standa á hælunum of lengi.. Stendur maður ekki alltaf á hælunum? Greinilega of mikið álag eða eitthvað.. :/ En þetta gekk fínt. Nicoline var svo að segja að hún hélt að ég væri dáin, var náttúrulega alveg hvít í framan og með hreyfði ekki augun..

En annars erum við búin með herbergið mitt, ekkert smá flott.. :)
Nenni ekki að blogga meira..


Undir og inn!=)

Friday, May 26, 2006

Skunk Anansie - Secretly

Hallo.

Ég er búin að mála herbergið mitt. Búin að setja nýtt veggfóður, eða pabbi og Anvør gerðu það. Svo herbergið mitt er hvítt með smá brúnum lit í.. Nice. Ekki grænt lengur, svo það lítur út fyrir að vera miklu stærra, sem er gott. Svo hringdi Nicoline til mín, bað mig um að hjálpa sér að mála sitt herbergi, fór svo til hennar að hjálpa henni. Svo erum við að fara á Rockparty á morgunn.. :D Hlakkar geðveikt til. Þetta er bara eins og Versló..

Svo fúm ég og Nicoline til Michael, vinur hennar. Þegar við komum var einn ölkassi tómur og aaallt borðið var fullt af tómum flöskum. Og Nicoline drakk ekki 1 bjór! So proud of my baby! :D Það var föstudaginn, svo fórum við í afmæli hjá Dolf á laugardaginn. Það var alveg ágætt. Þetta var sko bara svona diskótek..
Svo eigum við ekki að fara í skólann fyrr en mánudaginn, frí í dag og á morgun og svo er auðvitað helgi :D
Annars hef ég ekkert að segja.. :/


Undir og inn!=)

Friday, May 12, 2006

Personality test..

Your Personality Is
Guardian (SJ)

You are sensible, down to earth, and goal oriented.Bottom line, you are good at playing by the rules.
You tend to be dominant - and you are a natural leader.You are interested in rules and order. Morals are important to you.
A hard worker, you give your all at whatever you do.You're very serious, and people often tell you to lighten up.
In love, you tend to take things carefully and slowly.
At work, you are suited to almost any career - but you excel in leadership positions.
With others, you tend to be polite and formal.
As far as looks go, you are traditionally attractive. You take good care of yourself.
On weekends, you tend to like to do organized activities. In fact, you often organize them!

Er þetta ekki svolítið líkt mér? :)

Undir og inn!=)


Thursday, May 04, 2006

FIRE!!!

People!

Ég, mamma og Palli fórum til Frederikshavn kl:14.00 og Bonnie var eftir heima. Svo átti ég að fara í klippingu kl:15.00.. Svo þegar ég var komin þangað, sagði konan að ég ætti ekki að koma fyrr en kl:17.00, jæja! Svo pantaði ég tíma fyrir mig og Palla rétt áður en við förum til Íslands, svo það sé 100% að við fáum tíma(?).. :D
Svo hringdi ég í mömmu og sagði henni að ég væri búin að fá tíma fyrir mig og Palla, og hún sagði: Okay.. flott.. það er kveiknað í eldavélinni!! Ég bara: uh.. okay.. hljóp heim! Og þegar ég kom heim var ALLT svart! Mamma og Palli voru samt búin að slökkva eldinn og Bonnie, elsku hundurinn minn er dáinn!!!!!



Nei, nei.. just kidding.. Hún er alive, en pæliði samt í því.. Ef ég hefði ekki ruglast á tímanum og farið kl:17.00, væri hún dáin.. :O
En við höldum annars að Bonnie hafi hoppað á eldavélina eða eitthvað, og svo rekist í takkana og kveikt á eldavélinni og brennt skólatöskuna mína! Hahahaha! Skólataskan mín er óóónýt! :') Allavegana ekkert að læra fyrir morgunndaginn.. Hihi.. :P
En eldavélin er ónýt og svo eru einhverjir karlar að koma hingað á morgunn að þrífa allt húsið! :D Finally.. allt er svart og það er alveg ömurleg lykt hérna.. :/
En jæja.. that's life.. Svo erum við að fara í fermingu á sunnudaginn.. mmmm.. kökur :D
Evo erum við að fara í próf í næstu viku.. :/ Og ég fer 100% til Skotlands.. :D

Svo koma myndir bráðum.. Er búin að prófa að setja þær inná 2, en það virkar ekki.. :/


Undir og inn!=)

Monday, May 01, 2006

Hm..

Jæja.. ég er að hugsa um að kannski fá mér bloggar.is.. ?

Er komin með svolítið leið á þessari..

-confused.

Undir og inn!=)