Saturday, December 24, 2005

GLEÐILEG JÓL!:D


Vildi bara láta vita af mér... I'm still alive. Greyið þið, ha? En já, gleðileg jól og vona bara að 'þið' eigið eftir að hafa það gott!:D
Það er enginn snjór hérna svo ég er ekki komin í neitt rosalegt jólaskap... En Bonnie(hundurinn minn) fékk jólagjöf áðan. Hún fékk 2 bein og ENGINN má taka þau eða koma nálægt þeim! Hún stekkur bara á mann og byrjar að naga hendurnar á manni, urrar! Suuure... En það er satt að það má enginn koma og taka beinin hennar. Hún á ALDREI eftir að bíta. Hún er 'góðasti' hundur ALIVE!


Gleðileg jól og farsælt komandi ár!:D


Undir og inn!=)

Monday, December 19, 2005

19. desember!:D

Kannski kominn tími til að blogga? Hef ekkert að segja...er með sýkingu í eyrunum. Alveg ógeðslega vont!! Jólafrí á miðvikudaginn, FINALLY!!!
Svo er ég bara búin að kaupa jólagjafir...5 dagar til jóla!:D En ég hef eiginlega ekkert að segja...



Undir og inn!=)

Monday, December 12, 2005

12. DESEMBER!:D

From this day on, er ég búin að búa í Danmörku í 1 ár! Ég var einmitt að tala við Guðný um það í gær og við bara ,,Wow! Tíminn líður geðveikt hratt!". Mér finnst alveg eins og ég hafi bara búið hérna í 6 mánuði. Time goes on...

Dr.Phil er í sjónvarpinu og hann er að tala við 2 stelpur sem að voru að flýja frá einhverjum 'hópi' sem heitir Polygamy í Colorado City í Arizona. Stelpur eiga að gifta sig bara 14 ára eignast eins mörg börn og þau geta þangað til það að líkamlega bara er ekki hægt! Karlarnir gifta sig eins oft og þeir vilja. Einn af þessum körlum, Winston Blackmore á 80 börn með 26 konum. Þetta er ógeðslegt! Ef börnin gráta í verður hausnum dýpt ofaní klósett þangað til þaú hætta að gráta. Þetta er alltaf gert áður en þau fara í krikju svo börnin gráta ekki eða hlæja...
Þau vita ekki að George Bush er forsetinn Bandaríkjanna, þau vita ekki að það eru fólk sem hafa verið á tunglinu og þau trúa því að þau eiga eftir að lenda í helvíti ef þau gera eitthvað af sér. Þau hætta í skóla 4 ára og svo fara þau í 'skóla' í kirkjunni og þeim verður kennt að sauma og þvo. Karlarnir eru 'betri' en konurnar, konurnar mega ekki vera í sambandi með einhverjum öðrum/annari og mennirnir mega velja nákvæmlega þá konu/stelpu sem þeir vilja. Alveg sama hvort að þeir séu 85 og hafa verið giftir 60 sinnum. Their choise!
Þeim er kennt að svört fólk eru bara djöflarnir og ef þau taka í hendina á einhverjum, verða þau svört! Þau trúa þessu! Einu sinni þegar ein af þessum stelpum var 4 ára, þær heita Faw, spurði pabba sinn hvort að þetta væri satt, hvort að þetta væri eitthvað sem Guð vildi, t.d. þetta með klósettið börnin og svona, þá sendi hann hana inn í herbergið sitt og hún fékk ekki að borða í 2 daga! Frá því þau eru 2 ára verða þau að klæðast sérstökum fötum. Stelpur verða að vera í löngum kjólum og strákarnir mega ekki vera í stuttbuxum eða bolum.
Warren Steed Jeffs
Warren Steed Jeffs fæddist 1956 og er leiðtoginn og segir að hann sé "speaker of God's will". Pabbi hans var fyrst leiðtogi en hann dó 2002. Enginn hefur séð hann á almannafæri síðan 2004. Hann er á FBI most wanted lista. Hann hefur oft verið kærður fyrir að vera með ungum stelpum...
Auðvitað hugsar maður ,,afhverju fara þau ekki bara burt?". ÞAÐ ERU GIRÐINGAR OG MYNDAVÉLAR ALLSTAÐAR!!! Þau sem eru þarna trúa öllu sem hann segir...
Undir og inn!=)

Sunday, December 11, 2005

11. desember!:D

Jæja! Ég var að horfa á sænska sjónarpið og Ísland var Miss World 2005! Ekki slæmt! En halló! Hún var 100% sú fallegasta í keppninni. Það eina sem Íslendingar vinna er þegar það hefur eitthvað með fegurð að gera...well dah!:P Danmörk var ekkert falleg. En tókuðu annars eftir því að það voru allar gömlu Miss World, þær voru allar dökkhærðar? Líka 2005 og Unnur Birna? Aaa, det tror jeg! En annars eru systur mínar dökkhærðar núna þannig að þegar ég verð fullorðin, þá verð ég líka dökkhærð so...YEAH! Suuure:') En ég verð annars dökkhærð!

Thank you for listening and goodnight!


Undir og inn!=)

Saturday, December 10, 2005

10. desember!:D

Já...blogg? Ég er ekki búin að gera neitt! Það voru próf í skólanum. Stærðfræði og ritgerð...finally over:D En ég og Palli fórum að leigja myndir í gær og kaupa nammi og svona, svo sá ég strák sem er einu ári eldri en ég, var að hætta í grunnskólanum og hann var með bílpróf, borgaði sekt á 1.500 fyrir kærustuna sína, þetta eru danskir peningar, sem sagt 10.500 íslenskar! Og hann keyrði bíl, felgurnar kostuðu örugglega 100.000 kall! DANSKAR! Ég veit ekkert hvað felgur kosta, en þessar voru 100% dýrar! En hann má vera ríkur mín vegna;)
Enég og Palli horfðum annars á Fantastic 4 og Stealth og að Jamie Foxx deyr svona snemma í Stealth er náttúrulega bara asnalegt! Ég vissi alveg að hann myndi deyja en þetta var alltof snemma! Svo kysstust Jessica Biel og Josh Lucas ekki! ASNALEGT! Mér fannst myndin líka vera frekar langdregin...var ekkert mikið að gerast í henni. En Fantastic 4 afur á móti! That's beauty!:D Chris Evans var bara fyndinn! Hahaha! En myndin var samt svo eitthvað...? Maður vissi nákvæmlega hvað myndi gerast, það er yfirleitt þannig en...COME ON!
En myndirnar voru annars fínar:) Ég ætti að vera svona kvikmyndagagngrýnandi, nei hvernig skrifar maður þetta?:') Jæja Beinta! En ég er búin að tjá mig í dag!


Undir og inn!=)

Wednesday, December 07, 2005

7. desember!:D

Verið ekkert að búast við einhverju löngu bloggi...
En ég fór í skólann kl.8.45 í morgunn. Við vorum að skrifa ritgerð í ferðatölvum!:D Love them! Þegar við komum inn í stofuna voru engar tölvur! Hahaha! Kannski gott að hafa þær? En við fengum hefti og þar var svo eitthvað sem við gátum skrifað um. Ég gerði t.d. grein um þegar S/S Norge sakk 28.júní í 1904! Það var sko alveg helling sem ég gat notað en ég var bara svo lengi! Ég gerði bara 1 síðu, en mér finnst samt að þetta hafi verið fínt! Allt sem ég geri er svo gott...sure?
En er fólki ekki farið að hlakka til jóla?! Við verðum hjá systur minni og nýja kærastanum hennar! Desember er nú bara nýbyrjarður þannig að ég er ekki alveg viss hvort að við verðum hjá henni! Hún fær sér alltaf nýjann kærasta á mánaðarfresti...og takið eftir! Þeir eru allir ríkir!
En nóg um systur mína. Vona bara að við verðum hjá henni um jólin!:] En mamma og pabbi eru búin að kaupa jólagjöfina mína...ég fór eitthvað aðeins að ýta á hana og gá hvort að ég myndi fatta hvað þetta væri, eða að það myndi óvart koma gat á pakkan...ekkert gat en þetta er eins og svona verkærataska! Er nú samt 100% viss að þau eru ekki að kaupa mér verkfæri!:') Annars eru þau búin a misskilja allt um mig alveg rooosalega!

Robbie Williams-Advertising space


Undir og inn!=)

Monday, December 05, 2005

5. desember!:D

Yellow!:D Þetta er allt orðið svo stórt inná netinu! Þá meina ég sko stafirnir og svona. Þetta er samt ekki á öllum síðum, minni samt! Sucks! Ég kann ekkert að laga þetta! Ef einhvern kann, HELP ME, SOS!!
Þetta er ekkert smá pirrandi! Augun fara lengst inní heila!:O Alltaf þegar maður sér eitthvað stórt, ooof stórt þá fer maður svona afturábak, en þegar ég fer á internetið þá sit ég auðvitað í stól, þannig að þegar síðan(mín, ruglast ekkert smá á þessu!) kemur þá get ég ekkert farið afturábak, svo augun fara inní heila, í gegnum og inn aftur!:O Það er samt eiginlega ekki hægt því ég er með svo stórann heila! Gáfuð:P En 19 dagar til jóla og ég nenni þessu ekki lengur!


Have a nice time people:D


Undir og inn!=)

Thursday, December 01, 2005

1. desember!:D

Jæja! Eru ekki allir í jólaskapi?:P En það er víst 'World AIDS Day':D Klöppum fyrir því:D Right? En við í bekknum vorum að skreyta í dag og það er bara EKKI jólalegt!:/ Hríííseeey!!!! Það var alltaf svo jólalegt í skólanum...hérna?! NOPE!! Það er ekkert jólalegt! Að vera í skólanum í heilann dag eyðileggur alveg jóla...skapið? Og nágrannarnir, 9.c eru búin að skreyta alveg helling! BLESS! ! !
En annars erum við hérna heima og í nágrenninu búin að skreyta alveg helling!:D Dnair eru farnir að SKREYTA and it's nice:P Pabbi er að gera svo jólabjöllur fyrir einhvern karl! Honum fannst pabba vera svo flott! Varð að fá svona, EN GETUR EKKI GERT ÞAÐ SJÁLFUR EINS OG ALLIR AÐRIR Í HEIMINUM! Alltaf að biðja pabba að gera eitthvað...hann er samt fyrsti karlinn í Danmörku sem er að biðja um 'greiða'! En í Hrísey...WOW!:O En þetta er fínt:P
Have a nice time, HLUNKAR:D
Undir og inn!=)